Fotbolti.net
20.06.26 - 19:13
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Fílabeinsstrandarinnar og Þýskalands: Gerir fimm breytingar á liðinu

Amad Diallo kemur inn í byrjunarliðið en það er ein af fimm breytingum sem Emerese Fae gerir á liðinu

Amad Diallo kemur inn í byrjunarliðið en það er ein af fimm breytingum sem Emerese Fae gerir á liðinu

Canon

Mynd: EPA

Fílabeinsströndin og Þýskaland mætast í annarri umferð í E-riðli heimsmeistaramótsins klukkan 20:00 á BMO-leikvanginum í Toronto í Kanada í kvöld.
Julian Nagelsmann, þjálfari Þjóðverja, breytir ekki liðinu sem slátraði Curacao, 7-1, í fyrstu umferðinni.

Það eru hins vegar fimm breytingar á byrjunarliði Fílabeinsstrandarinnar frá 1-0 sigrinum á Ekvador. Odilon Kossounou, Ange-Yoan Bonny, Amad Diallo, Ibrahim Sangaré og Christ Inao Oulai koma inn fyrir Seko Fofana, Elye Wahi, Guela Doué, Nicolas Pépé og Bazoumana Touré.

Áhugaverðar breytingar. Wahi, sem byrjaði síðasta leik hjá Fílabeinsströndinni, var handtekinn stuttu fyrir heimsmeistaramótið vegna gruns um veðmálasvindl, en hann missir sæti sitt í byrjunaliðinu.

Fílabeinsströndin: Fofana; Konan, Singo, Kossounou, Agbadou; Kessie, Sangare, Oulai; Bonny, Diomande, Diallo.

Þýskaland: Neuer; Kimmich, Tah, Schlotterbeck, Brown; Pavlovic, Wirtz; Sane, Musiala, Nmecha; Havertz.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.