20.07.06 - 11:30
Guðmundur Dagur Ólafsson
Corradi til Manchester City (Staðfest)

Corradi er kominn til Manchester City

Mynd: Getty Images

Corradi er kominn til Manchester City

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gengið frá kaupunum á ítalska framherjanum Bernardo Corradi frá spænska félaginu Valencia en kaupverðið er ekki uppgefið.
Corradi, sem er þrítugur, var síðustu leiktíð á láni hjá Parma í heimalandinu en hann skrifar undir þriggja ára samning við City.
"Ég er himinlifandi með að klófesta Bernardo. Hann er leikmaður sem ég hef fylgst með í nokkurn tíma og hann verður frábær viðbót við félagið," sagði Stuart Pearce, knattspyrnustjóri City, við opinbera heimasíðu félagsins.
Corradi, sem er fyrrum landsliðsmaður Ítalíu, gekk til liðs við Lazio árið 2004 en hann fann sig aldrei á Spáni. Hann var, eins og áður segir, á láni hjá Parma á síðustu leiktíð og skoraði þar 10 mörk í 35 leikjum í Serie A.
"Ég ætla sýna öllum að ég vil standa mig vel hér og ég ætla að leggja hart að mér svo að það gerist. En liðið skiptir öllu máli og ef við stöndum saman þá á okkur eftir að ganga vel," sagði Corradi.