Fotbolti.net
20.07.06 - 22:20
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Zambrotta og Thuram skrifa undir hjá Barcelona (Staðfest)

Zambrotta skrifaði undir fjögurra ára samning við spænsku meistarana

Zambrotta skrifaði undir fjögurra ára samning við spænsku meistarana

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hafa gengið frá kaupunum á varnarmönnunum Lilian Thuram og Gianluca Zambrotta frá Juventus en félagið voru, eins og flestir orðið vita, sendir niður í Serie B á dögunum.
Vitað var að Barcelona væri í viðræðum við ítalska félagið en spænska félagið greindu frá kaupunum á heimasíðu sinni núna rétt í þessu.

Thuram, sem hefur spilað 121 landsleik fyrir Frakka, skrifaði undir tveggja ára samning við Evrópumeistaranna og er honum líklega ætlað að spila við Carles Pyuol í miðverðinum eða í sinni upprunalega stöðu, hægri bakverði.

Zambrotta, sem spilaði frábærlega á Heimsmeistaramótinu er Ítalía urðu Heimsmeistarar, skrifaði hinsvegar undir fjögurra ára samning en hann hefur verið í sjö ár hjá Juve.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.