Siggi Raggi: Búnir að bíða lengi eftir að halda hreinu
Auglýsing

Sigurður Ragnar stýrði ÍBV til sigurs í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar stýrði ÍBV til sigurs í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>,,Mér fannst við gera þetta óþarflega spennandi. Við fengum fullt af færum í fyrri hálfleiknum til að vera komnir með meira forskot en 1-0, og fengum svo dauðafæri í seinni hálfleiknum einn á móti markmanni en náðum ekki að stúta leiknum. Framararnir voru alltaf inni í leiknum en ég er virkilega sáttur, við unnum 2-0 og héldum loksins hreinu. Við erum búnir að bíða lengi eftir því,\"</i> sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari ÍBV eftir 2-0 sigur á Fram í dag.
,,Mér fannst við gefa mjög fá færi á okkur. Það voru helst einhver langskot sem þeir áttu og aukaspyrnur og horn sem við vitum að Fram liðið er hættulegt í. Þeir eru með góða spyrnumenn og hávaxna menn. En í opnum leik sköpuðu þeir sér ekki neitt svo ég er ánægður með liðið í dag.\"
ÍBV hefur unnið þrjá leiki í röð í deildinni núna eftir slæma byrjun á mótinu. En hverju breytti Siggi Raggi?
,,,Við höfum ekki breytt spilamennskunni mikið en við höfum haft trú á því sem við erum að gera. Við vorum óheppnir í mörgum leikjum í byrjun móts en núna erum við búnir að vinna þrjá í röð í deildinni og komnir í fína stöðu í bikarnum í undanúrslitum og að er allt á uppleið hérna. Við höldum bara áfram að bæta okkur.\"
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.