Sænska goðsögnin Zlatan Ibrahimovic skoraði þrennu fyrir Los Angeles Galaxy í nágrannaslag gegn Los Angeles FC í MLS-deildinni síðastliðna nótt.
Hinn 37 ára gamli Zlatan er enn rosalega góður í fótbolta.
Zlatan var ekki sáttur við spurningar sem hann fékk í aðdraganda leiksins. Hann var spurður að því hvort hann væri á þeim buxunum að hann væri besti leikmaður MLS-deildarinnar. Honum var bent á það að Carlos Vela, leikmaður LAFC, væri búinn að vera frábær. Hann er búinn að skora 21 mark og leggja upp þónokkur til viðbótar.
Vela skoraði tvennu í leiknum í gær á meðan Zlatan setti þrennu. Eftir leikinn sagði Zlatan: „Þið gerðuð ein mistök, þið báruð mig saman við hann. Það voru ykkar stærstu mistök."
Vela er 29 ára og fyrrum leikmaður Arsenal. Þegar Zlatan var spurður út í Vela fyrr í vikunni spurði hann einfaldlega á móti hvað hann hefði verið að gera 29 ára gamall.
Zlatan spilaði með AC Milan þegar hann var 29 ára, skoraði 21 mark það tímabil og varð ítalskur meistari.
Sjá einnig:
Myndband: Geggjuð þrenna Zlatan í nótt
Zlatan Ibrahimović on LAFC’s Carlos Vela: “You did one mistake, you compare him to me. That was your biggest mistake.” #LAGalaxy #LAvLAFC pic.twitter.com/Rr3ILeBmvw
— Adam Serrano (@AdamSerrano) July 20, 2019
Athugasemdir