Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. júlí 2021 22:41
Brynjar Ingi Erluson
Simeone: Vona að Griezmann gangi vel hjá Barcelona
Antoine Griezmann
Antoine Griezmann
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atlético Madríd, býst ekki við því að fá Antoine Griezmann frá Barcelona miðað við ummæli sem hann lét falla í kvöld.

Barcelona keypti Griezmann frá Atlético árið 2019 fyrir metfé eða 120 milljónir evra.

Félögin hafa verið í viðræðum síðustu daga um skipti á Griezmann og Saul Niguez

Þær viðræður virðast hafa siglt í strand því Diego Simone óskar Griezmann velfarnaðar hjá Barcelona í viðtali.

„Ég vona að Antoine Griezmann eigi eftir að afreka ótrúlega hluti hjá Barcelona," sagði Simeone.
Athugasemdir
banner
banner
banner