20.09.05 - 05:02
Magnús Már Einarsson
Dellas aftur til AEK Aþenu (Staðfest)

Dellas er hér í baráttu við Michael Owen.

Mynd: Getty Images

Dellas er hér í baráttu við Michael Owen.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Traianos Dellas hefur gert tveggja ára samning við sína gömlu félaga í AEK Aþenu. Þessi 29 ára gamli gríski landsliðsmaður sló í gegn er Grikkir urðu Evrópumeistarar í Portúgal í fyrra.
Hann yfirgaf Roma í sumar og var orðaður við lið eins og Lazio en hann hefur ákveðið að ganga til liðs við AEK þar sem hann lék einmitt á árunum 1999-2001.
Dellas sagði í gær: ,,Fyrir nokkrum árum sagði ég að AEK væri eina liðið sem ég myndi íhuga að spila með kæmi ég aftur í gríska boltann. Það er það sem hefur gerst í dag."
Dellas sagði í gær: ,,Fyrir nokkrum árum sagði ég að AEK væri eina liðið sem ég myndi íhuga að spila með kæmi ég aftur í gríska boltann. Það er það sem hefur gerst í dag."
