Fotbolti.net
20.09.06 - 12:44
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Dion Dublin til Norwich (Staðfest)

Dublin er kominn á Carrow Road

Dublin er kominn á Carrow Road

Canon

Mynd: Getty Images

Dion Dublin, fyrrum leikmaður Manchester United, Aston Villa, Coventry og Celtic, hefur gengið til liðs við Norwich á frjálsri sölu til loka tímabilsins og er Nigel Worthington, stjóri Norwich, ánægður með að hafa krækt í reynsluboltann.
,,Ég er mjög ánægður að hafa fengið svona reynslamikinn og hæfileikaríkan leikmann sem mun styrkja hópinn á vellinum og inní klefa," sagði Worthington á heimasíðu félagsins.

,,Hans besta staða er í sókinnni og þar ætla ég mér að spila honum, þó að hann getur auðvitað leyst af í vörninni líka."

Dublin hóf feril sinn á Carrow Road, heimavelli Norwich, en spilaði ekki leik fyrir þá áður en hann gekk til liðs við Cambridge árið 1988.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.