Sandra Sigurðardóttir æfði ekki með íslenska kvennalandsliðinu á æfingu liðsins daginn fyrir leik gegn Hollandi í undankeppninni. Á morgun er fyrsti leikur Íslands í undankeppni fyrir HM.
Ákveðið var að Sandra myndi ekki æfa þar sem hún er aum í öxlinni og best væri að hvíla.
Ákveðið var að Sandra myndi ekki æfa þar sem hún er aum í öxlinni og best væri að hvíla.
„Það er aðallega það, annars komust nokkurn veginn allir leikmenn heilir frá æfingunni," sagði landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson á fréttamannafundi í dag.
Mun Sandra spila á morgun?
„Já, hún spilar á morgun," sagði Þorsteinn.
Leikurinn gegn Hollandi hefst klukkan 18:45 á Laugardalsvelli á morgun.
Athugasemdir