Fotbolti.net
20.10.05 - 16:07
Magnús Már Einarsson

Signori í ungversku deildina (Staðfest)

Signori í ungversku deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski landsliðsmaðurinn fyrrverandi Giuseppe Signori er kominn í ungversku deildina en hann hefur gengið til liðs við Sopron þar í landi.
Þessi fyrrum framherji Lazio hafði áður verið til reynslu hjá ungversku meisturunum í Debrecen. Sopron segir á heimasíðu sinni að Signori sem er orðinn 37 ára sé ekki í besta forminu en skilningur hans á leiknum sé ennþá til staðar.

Spennandi verður að sjá hvort þessari gömlu kempu tekst að hjálpa Sopron sem er sem stendur í 14.sæti af 16 liðum í ungversku deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.