20.10.05 - 17:39
Liverpool kaupir Mark Gonzales (Staðfest)

Mark Gonzalez er á leiðinni á Anfield

Mynd: Getty Images

Mark Gonzalez er á leiðinni á Anfield

Mynd: Getty Images
Liverpool hafa gengið frá kaupunum á Chile-búanum Mark Gonzalez. Hann er hægri kantmaður sem kemur frá Albacete á Spáni en Rafael Benítez stjóri Liverpool hefur lýst honum sem besta leikmanni Chile. Gonzalez er meiddur á hné og mun dvelja í heimalandi sínu í mánuð til viðbótar áður en hann fer til Evrópumeistaranna.
Gonzalez getur þó ekki spilað strax fyrir Liverpool þar sem hann hefur ekki fengið atvinnuleyfi. Hann sótti um það í sumar en beiðni hans var hafnað. Það er vegna þess að Chile er ekki eitt af 70 efstu liðum á heimslista FIFA en þeir eru í 72 sæti!
Gonzalez gæti því ekki spilað fyrir Liverpool þrátt fyrir að vera orðin leikfær. Það mun þó í síðasta lagi gerast næsta sumar þar sem hann mun þá fá spænskt vegabréf. Upphaflega ætlaði Liverpool að fá hann lánaðan út tímabilið en vegna góðs bata ákváðu þeir að kaupa hann alfarið.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en hann skrifaði undir fjögurra ára samning. ,,Ég hef ekki mikinn tíma til að tala" sagði Gonzalez á flugvellinum á Spáni í dag þar sem hann var að fljúga heim til sín. ,,Á morgun, klukkan átta um morguninn, mun ég halda blaðamannafund í Santiago þar sem ég útskýri málið. Ég hef þegar skrifað undir 4 ára samning við Liverpool en get ekki farið út í nánari smáatriði. Á morgun kemur allt í ljós."