Fotbolti.net
20.10.06 - 13:12
Hafliði Breiðfjörð

Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir til FH (Staðfest)

Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir stýra ÍA af bekknum í sumar.

Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir stýra ÍA af bekknum í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

FH-ingar tilkynntu nú rétt í þessu á fréttamannafundi í Hafnarborg í Hafnarfirði að tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir eru gengnir til liðs við félagið frá ÍA. Þeir skrifuðu báðir undir eins árs samning við Íslandsmeistarana á fundinum sem stendur enn yfir.
Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni þarf ekki að kynna fyrir neinum. Þeir eru 33 ára gamlir tvíburabræður sem lærðu sín fótboltafræði hjá ÍA seint á síðustu öld. Þeir hafa komið víða við á ferli sínum en nú síðast voru þeir hjá sínu upppeldisfélagi, ÍA, þar sem þeir voru spilandi þjálfarar á síðari hluta tímabilsins og björguðu liðinu frá falli úr Landsbankadeildinni með því að spila blússandi sóknarbolta.

Eftir að Guðjón Þórðarson tók við liðinu þótti ljóst að þeir myndu ekki verða áfram leikmenn liðsins á næstu leiktíð og hyggðust leita annað. Þeim buðust störf við þjálfun hjá nokkrum félögum en ákváðu að halda áfram sem leikmenn og eru sem fyrr segir gengnir til liðs við FH.

Arnar Gunnlaugsson á að baki 32 landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann hefur komið víða við síðan hann fór frá ÍA til Feyenoord í Hollandi árið 1992. Síðan þá hefur hann leikið með Nuremberg í Þýskalandi, Sochaux í Frakklandi, Bolton, Leicester og Stoke City á Englandi og hann endaði feril sinn í atvinnumennsku hjá Dundee United í Skotlandi tímabilið 2002-2003.

Hann gekk í raðir KR árið 2003 og lék með þeim þar til hann gekk til liðs við ÍA fyrir síðustu leiktíð. Hjá ÍA lék hann 15 leiki í sumar og skoraði fimm mörk en í heildina hefur hann leikið 96 leiki í efstu deild hér á landi og skorað í þeim 54 mörk. Er hann kom til ÍA í sumar var það í fjórða skiptið sem hann lék með liðinu. Fyrst lék hann með þeim á árunum 1989-1992, svo 1995, svo 1997 og nú síðast 2006.

Bjarki Gunnlaugsson hefur leikið 27 landsleiki fyrir Ísland og hefur oft áður verið í sama liði og bróðir hans. Hann fór líka til Feyenoord árið 1992 og eftir það lék hann með Nurnberg, Mannheim,Molde og Brann áður en hann kom til Íslands á ný og lék með KR 1999. Hann fór þaðan aftur í lok tímabilsins til Preston á Englandi þar sem hann var til ársins 2002 en þá var ljóst að ferill hans sem atvinnumaður var á enda eftir þrálát meiðsli.

Hann hóf að æfa með Deiglunni í þriðju deildinni árið 2002 en varð fljótt ljóst að hann hefði enn hæfileika til að leika í efstu deild og fór því til ÍA þar sem hann var út tímabilið. Árið eftir fór hann í KR og var þar þangað til í sumar er hann gekk í raðir ÍA á ný. Hjá ÍA lék hann ellefu leiki í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði tvö mörk. Hann hefur leikið 96 leiki í efstu deild hér á landi eins og Arnar en skorað 31 mark.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.