Fotbolti.net
20.10.06 - 14:14
Hafliði Breiðfjörð

Atli Jóhannsson og Óskar Örn Hauksson til KR (Staðfest)

Atli Jóhannsson.

Atli Jóhannsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

KR-ingar kynntu nú rétt í þessu á fréttamannafundi í Frostaskjóli að þeir hafi styrkt sig verulega með tveimur sterkum leikmönnum. Þetta eru þeir Atli Jóhannsson sem kemur frá ÍBV, og Óskar Örn Hauksson frá Grindavík sem báðir skrifuðu undir þriggja ára samning við KR á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í Frostaskjóli.
Auk þessa tilkynntu KR-ingar um að þeir muni spila í búningum frá Nike á næstu leiktíð en undanfarin ár hafa þeir leikið í Prostar búningum.

Atli Jóhannsson var samningsbundinn ÍBV til áramóta en skrifaði fyrir skömmu undir nýjan samning við ÍBV sem gildir til eins árs en svo virðist sem sá samningur hafi aðeins verið gerður svo ÍBV fengi greiðslu fyrir hann færi hann annað. Þrátt fyrir það segja KR-ingar að þeir hafi ekkert borgað fyrir hann en gerðu í stað þess samning sem kveður á um að ÍBV geti fengið leikmenn lánaða frá Vesturbæjarliðinu.

Atli hefur verið eftirsóttasti leikmaðurinn á leikmannamarkaðanum síðan Landsbankadeildinni lauk í haust og FH-ingar höfðu áður staðfest áhuga sinn á að næla í hann. Það fór hinsvegar svo að KR-ingar unnu kapphlaupið um hann.

Atli Jóhannsson er 24 ára gamall. Hann lék alla 18 leiki ÍBV í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk. Hann var besti leikmaður ÍBV og eftir að ÍBV féll úr deildinni þótti nokkuð ljóst að hann myndi róa á önnur mið.

Óskar Örn Hauksson er 22 ára gamall og þykir geysimikið efni. Hann hóf feril sinn hjá Narðvík en hefur einnig verið hjá Sogndal í Noregi. Hann lék alla 18 leiki Grindavíkur í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim sex mörk.

Hann er samningsbundinn Grindavík til áramóta og máttu því hefja viðræður við nýtt félag 15. október síðastliðinn. Hann hefur leikið með U18 og U19 ára landsliðum Íslands.
Óskar Örn Hauksson.

Óskar Örn Hauksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.