20.10.06 - 12:50
Atli Jóhannsson frá ÍBV til KR (Staðfest)

Atli í leik með ÍBV gegn KR í fyrra. Hann og Grétar Ólafur Hjartarson eru nú orðnir samherjar.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Miðjumaðurinn Atli Jóhannsson er genginn til liðs við KR. Eins og Fótbolti.net greindi frá í gærkvöldi hafa viðræður verið í gangi á milli ÍBV og KR undanfarið en mörgum brá í brún þegar Atli, sem var orðaður við flest lið Landsbankadeildarinnar, skrifaði undir nýjan samning við ÍBV um síðustu helgi.
Það þýðir að KR kaupir Atla frá Vestmannaeyjum en kaupverðið hefur ekki fengist gefið upp. Atli hefur einnig náð samkomulagi við KR-inga um sinn hlut og mun skrifa undir samninginn á blaðamannafundi sem hefst klukkan 14.00 í húsakynnum Vesturbæinga.
Samkomulagið felur einnig í sér að ÍBV geti fengið til sín leikmenn frá KR að láni næsta sumar, ef samningar nást við leikmennina.
Fótbolti.net verður á blaðamannafundinum í dag og má búast við efni frá honum seinni part dags en þar mun Óskar Örn Hauksson einnig skrifa undir samning við KR en hann kemur til þeirra frá Grindavík.
Atli var burðarás í liði ÍBV í sumar og hefur verið meðal bestu leikmanna Eyjamanna undanfarin ár. Um leið og þetta er mikil blóðtaka fyrir ÍBV, sem féll úr Landsbankadeildinni í ár, er þetta mikill styrkur fyrir KR-inga sem ætla sér greinilega stóra hluti í deildinni á næsta ári.

Heimild: Heimasíða ÍBV