Fotbolti.net
20.10.06 - 17:19
Magnús Már Einarsson

Theódór Óskarsson til Fram (Staðfest)

Theódór í leik með HK á síðasta tímabili, gegn Frömurum sem hann mun leika með næsta sumar.

Theódór í leik með HK á síðasta tímabili, gegn Frömurum sem hann mun leika með næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sóknarmaðurinn Theódór Óskarsson hefur gengið til liðs við Framara en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Theódór sem er örfættur lék með HK í fyrstu deildinni í sumar en var samningslaus og ákvað hann að gera tveggja ára samning við Fram.
Theódór þekkir Ólaf Þórðarson þjálfara Framara en þeir voru báðir hjá Fylki 1998 og 1999 þegar að sá síðarnefndi þjálfaði Árbæjarliðið.

Theódór er uppalinn Fylkismaður og skoraði hann sex mörk í 62 leikjum fyrir félagið í efstu deild á árunum 2000-2003. Eftir pásu frá fótbolta árið 2004 lék hann með ÍH í þriðju deildinni í fyrra.

Í sumar lék hinn 26 ára gamli Theódór síðan með HK eins og fyrr segir og skoraði hann eitt mark í tólf leikjum, en það kom einmitt í 3-2 tapi liðsins gegn Frömurum í níundu umferð deildarinnar.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.