Fotbolti.net
20.10.26 - 12:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Árni Steinn í Hauka (Staðfest)

Fjórði nýi leikmaðurinn

Árni Steinn í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Haukar halda áfram að þétta raðirnar eftir gott tímabil og eru búnir að ná samkomulagi við fjórða nýja leikmanninn í haust því Árni Steinn Sigursteinsson er búinn að samþykkja samning hjá Haukum. Fótbolti.net sagði frá áhuga Hauka á Árna Steini í risastóra íslenska slúðurpakkanum sem birtur var á dögunum.

Árni Steinn er sóknarmaður sem fæddur er 2003 og kemur frá Fjölni. Hann er uppalinn hjá Fjölni og hefur leikið allan sinn feril í Grararvogi. Á liðnu tímabili skoraði hann níu mörk í 22 deildarleikjum, eitt í Mjólkurbikarnum og eitt í Fótbolti.net bikarnum. Hann var markahæsti leikmaður liðsins ásamt þeim Viktori Andra Hafþórssyni og Bjarna Þór Hafstein.
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
TENGT EFNI

Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti

Fyrir höfðu Haukar fengið Daníel Ingvar Ingvarsson frá Haukum og þá Federico Russo og Pere Belemonte frá Kormáki/Hvöt. Árni Steinn skrifar undir þriggja ára samning við Hauka.

Haukar unnu 2. deildina í sumar og verða í Lengjudeildinni á komandi tímabili. Guðjón Pétur Lýðsson er þjálfari Hauka og þeir Óskar Örn Hauksson og Pablo Punyed eru Guðjóni til aðstoðar.

Árni Steinn í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.