Fotbolti.net
20.11.07 - 23:41
Magnús Már Einarsson

Kristján Óli Sigurðsson tekur við Hvöt (Staðfest)

Kristján Óli Sigurðsson tekur við Hvöt (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Hvatar

Hvöt úr annarri deild hefur ráðið Kristján Óla Sigurðsson sem þjálfara en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Kristján Óli eru uppalinn á Blönduósi og lék með Hvöt þar til hann skipti yfir í Breiðablik í 2.flokki.

Þessi 27 ára gamli kantmaður hefur skorað 41 mark í 187 leikjum með Blikum frá árinu 1999 en í sumar gerði hann þrjú mörk í þrettán leikjum í Landsbankadeildinn.

Nú hefur hann tekið við Hvöt og mun þjálfa og leika með liðinu í annarri deildinni næsta sumar.

Kristján Óli skrifaði undir samninginn við Hvöt í kvöld en hann mun fyrst um sinn þjálfa liðið í Reykjavík þar sem flestir leikmenn liðsins eru í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.