Fotbolti.net
20.11.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Ekki víst að Saka snúi aftur fyrir jól - Zubimendi frá næstu vikurnar

Bukayo Saka.

Bukayo Saka.

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að ekki sé víst að Bukayo Saka snúi aftur fyrir jól en hann hefur verið að glíma við meiðsli í læri.

Saka hefur verið frá keppni síðan hann haltraði af velli gegn Bayern München í lok síðasta mánaðar. Hann þarf ekki á aðgerð að halda.

Þegar Arteta var spurður hvort Saka gæti verið heill fyrir leikinn gegn Manchester United 20. desember var hann óviss.
England um helgina - Pochettino byrjar á Anfield
TENGT EFNI

England um helgina - Pochettino byrjar á Anfield

„Ég get ekki verið svo nákvæmur. Eftir fjórar vikur getur margt gerst. Við getum ekki spáð nákvæmlega fyrir um hvenær hann getur snúið aftur," segir Arteta.

Arsenal verður einnig án Martín Zubimendi í leiknum gegn Newcastle á laugardaginn eftir að spænski miðjumaðurinn meiddist á læri í leik gegn Englandi síðasta sunnudag. Hann verður frá næstu vikurnar.

William Saliba er tilbúinn að snúa aftur eftir langvarandi bakmeiðsli en Max Dowman er enn í banni eftir rauða spjaldið gegn Fleetwood.
Martin Zubimendi verður ekki með um helgina.

Martin Zubimendi verður ekki með um helgina.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.