Fotbolti.net
20.12.06 - 17:59
Þórður Már Sigfússon

Gunnar Líndal Sigurðsson til Fram (Staðfest)

Gunnar Líndal Sigurðsson til Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Markvörðurinn Gunnar Líndal Sigurðsson hefur samið við Framara til tveggja ára en hann hefur verið á mála hjá Þór Akureyri undanfarin ár. Þetta kemur fram á vefsíðu Safamýrarfélagsins.
Gunnar, sem er 21. árs, á að baki tvo úrvalsdeildarleiki með Þór sem og nokkra leiki með yngri landsliðum Íslands. Hann var aðalmarkvörður Þórs í 1. deildinni á síðustu leiktíð.

Gunnar rifti samningi sínum við Þór fyrr í þessum mánuði og lék með Framliðinu í æfingaleik gegn FH fyrir stuttu og virðist hafa náð að heilla forráðamenn félagsins nóg til þess að fá samning.

Framarar verða ekki á flæðiskeri staddir með markverði á næstu leiktíð því hinn ungi og efnilegi markvörður, Hannes Þór Halldórsson, gekk til liðs við félagið frá Stjörnunni í október. Einnig er Ögmundur Kristinsson markvörður undir 19 ára landsliðs Íslands einnig á mála hjá Fram.

Heimild: Vefsíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.