Fotbolti.net
21.01.05 - 05:37

Kyrgiakos til Rangers (Staðfest)

Kyrgiakos til Rangers (Staðfest)
Canon
Rangers hafa fest kaup á gríska varnarmanninum Sotirios Kyrgiakos. Hann kemur frá Panathinaikos í heimalandi sínu fyrir 1,75 milljónir punda. Hann mun koma inn í vörnina í stað Jean-Alain Boumsong sem seldur var til Newcastle fyrr í janúar fyrir 8 milljónir punda.
Hann hefur spilað 10 landsleiki fyrir Grikkland en var óhepinn að missa af sigri liðsins á Evrópumótinu en hann meiddist á hné, kaldhæðnislega í leik gegn Rangers í Meistaradeildinni!

Rangers hafa verið orðaðir við marka varnarmenn að undanförnu sem var ætlað að fylla í skarð Boumsong. Þar á meðal vaoru Stephane Henchoz leikmaður Liverpool og Martin Taylor sem leikur með Birmingham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.