21.01.05 - 12:16
Scott Carson til Liverpool (Staðfest)




Liverpool hafa fest kaup á enska U-21 landsliðsmarkverðinum Scott Carson frá Leeds. Carson hefði orðið samningslaus í sumar og vildi hann ekki skrifa undir nýjan samning við Leeds. Kaupverðið er 750.000 pund en það gæti hækkað upp í 1 milljón punda en það er árangurstengt ferli Carson hjá Liverpool. Chelsea höfðu einnig áhuga á að kaupa þennan snjalla markmann en hann ákvað að velja frekar Liverpool.
"Það er mikill léttir að það er búið að ganga frá þessu" sagði Carson aðspurður hvernig sér liði að vera kominn til Liverpool. "Ég er hæstnánægður með að vera kominn hingað og ég get ekki beðið eftir því að byrja. Vonandi get ég aðlagast fljótt, sannað mig fyrir stjóranum og orðið mikilvægur hluti af liðinu."
Carson fer líklega beint í hópinn hjá Liverpool sem mætir Southampton á morgun. Honum er lýst sem framtíðarmarkverði enska landsliðsins og hefur honum verið hrósað við hvert tilefnið af fætur öðru.
Carson fer líklega beint í hópinn hjá Liverpool sem mætir Southampton á morgun. Honum er lýst sem framtíðarmarkverði enska landsliðsins og hefur honum verið hrósað við hvert tilefnið af fætur öðru.
