21.01.06 - 11:34
Magnús Már Einarsson
Basinas til Mallorca (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Mallorca hefur fengið gríska miðjumanninn Angelos Basinas frítt en þessi knái leikmaður hefur verið án félags síðan að hann yfirgaf Panathinaikos í sumar.
Þessi þrítugi leikmaður sem var hluti af sigurliði Grikkja á EM 2004 hefur margoft verið orðaður við ensk lið og meðal annars hafa Everton, West Ham og Birmingham sýnt áhuga á leikmanninum.
Hann hefur nú hinsvegar ákveðið að fara til Mallorca og er hann þriðji leikmaðurinn sem liðið fær í mánuðinum en áður höfðu Jose Carlos de Araujo Nunes og Leonardo Pisculichi komð til að styrkja liðið sem er í mikilli fallbaráttu.