Fotbolti.net
21.01.06 - 12:35
Magnús Már Einarsson

Lobont til Fiorentina (Staðfest)

Lobont til Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fiorentina hefur keypt markvörðinn Bogdan Lobont frá Ajax fyrir óuppgefna upphæð en honum er ætlað að fylla skarð Sebastien Frey sem verður væntanlega ekki meira með á leiktíðinni vegna meiðsla.
Lobont sem er 28 ára rúmenskur landsliðsmaður kom til Ajax frá Rapid Búkarest og átti tvö og hálft ár eftir af samningi sínum við liðið en hann hefur nú ákveðið að fara eftir að hafa leikið 68 leiki fyrir hollenska liðið.

Fiorentina hafði áður sagt að liðið ætlaði ekki að kaupa markvörð þrátt fyrir meiðsli Frey en liðinu hefur nú snúist hugur. Liðið sem er í mikilli baráttu um Meistaradeildarsæti hefur einnig krækt í varnarmanninn Per Kroldrup frá Everton í vikunni eins og við höfum greint frá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.