Hinn 19 ára gamli Erling Braut Haaland hefur verið valinn sem leikmaður vikunnar í Meistaradeild Evrópu.
Haaland skoraði bæði mörk Borussia Dortmund í 2-1 sigri gegn Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum síðasta þriðjudagskvöld.
Haaland hefur farið feykilega vel af stað með sínu nýja félagi og er búinn að skora ellefu mörk í sjö leikjum frá komu sinni í janúar.
Renan Lodi, varnarmaður Atletico Madrid sem lék lykilhlutverk í 1-0 sigri gegn Liverpool, var einnig tilnefndur ásamt Hugo Lloris sem bjargaði Tottenham trekk í trekk í 0-1 tapi gegn RB Leipzig.
Hollenski bakvörðurinn Hans Hateboer kom einnig til greina í kjörinu. Hann skoraði tvennu í 4-1 sigri Atalanta gegn Valencia og var með 92% heppnaðar sendingar.
Athugasemdir