Fotbolti.net
31.10.26 - 13:32
Brynjar Ingi Erluson

Emil Atla í Fram (Staðfest)

Emil Atlason er kominn í Fram!

Emil Atlason er kominn í Fram!

Canon

Mynd: Fram

Sóknarmaðurinn Emil Atlason er genginn til liðs við Fram frá Stjörnunni, en Framarar staðfestu félagaskiptin í dag.
Emil er 33 ára og lék með Stjörnunni í sjö ár, þar sem hann skoraði 61 deildarmark og varð meðal annars markakóngur Bestu deildarinnar árið 2023.

Hann á glæsilegan feril að baki og hefur meðal annars leikið með KR, Þrótti, HK, Val og Preussen Munster í Þýskalandi. Þá hefur hann leikið einn A-landsleik auk þess að hafa skorað átta mörk í tólf leikjum með U21 árs landsliðinu.

Samningur hans við Stjörnuna átti að renna út í næsta mánuði, en Emil ákvað að róa á önnur mið. Hann er nú genginn í raðir Fram þar sem hann endurnýjar kynni sín við Rúnar Kristinsson, en þeir unnu saman hjá KR.

„Það er mikið gleðiefni að Emil hafi valið að koma til okkar í FRAM, enda eftirsóknarverður leikmaður sem flest lið í deildinni myndu vilja hafa í sínum röðum. Emil kemur inn í hópinn með gríðarlega reynslu, markanef og sterkan karakter. Emil mun koma til með að vera mjög góð viðbót við annars sterkan leikmannahóp okkar og verður spennandi að fylgjast með honum í FRAM treyjunni,“ segir í tilkynningu Framara.

Framarar höfnuðu í þriðja sæti Bestu deildarinnar á nýafstöðnu tímabili og tryggðu sér þar með sæti í forkeppni Sambandsdeildarinnar á næsta ári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.