21.02.21 - 19:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guardiola: Sé fram á bjarta framtíð fyrir Arsenal


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
„Þegar Arsenal var með boltann og Ödegaard á boltanum eða Saka, þá var erfitt að eiga við þá. Arsenal er mjög gott þegar liðið heldur boltanum. Liðið er með ótrúlega, unga, hæfileikaríka leikmenn svo ég sé fram á bjarta, bjarta framtíð fyrir Arsenal," sagði Pep Guardiola, stjóri Man City, á blaðamannafundi eftir 0-1 útisigur sinna manna í kvöld.
„Þeir þurfa ekki að sækja á svo mörgum mönnum og munu taka ótrúlega stórt skref fram á við. Ég veit að öll lið eiga erfitt með að spila gegn Arsenal. Arteta er svo stjóri sem veit allt um fótbolta," bætti Pep við þegar hann hrósaði leik Arsenal í kvöld.
Pep talaði um það í viðtali eftir leik að hann var ánægður með úrslitin og að eftir fyrsta korterið hafi Arsenal stýrt leiknum í dágóðan tíma.
„Það eru 39 stig í pottinum og við leiðum með tíu, við verðum að halda áfram að vinna, við erum búnir að vera á ótrúlegu skriði," sagði Guardiola.
Pep talaði um það í viðtali eftir leik að hann var ánægður með úrslitin og að eftir fyrsta korterið hafi Arsenal stýrt leiknum í dágóðan tíma.
„Það eru 39 stig í pottinum og við leiðum með tíu, við verðum að halda áfram að vinna, við erum búnir að vera á ótrúlegu skriði," sagði Guardiola.
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 10 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |
