Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. febrúar 2021 18:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Malta: Gunnar Örvar skoraði í sigri gegn Pieta
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Gunnar Örvar Stefánsson, lánsmaður frá KA, skoraði eitt marka St. Andrews í næst efstu deild á Möltu í dag.

Markið var þriðja mark liðsins í 2-3 útisigri á Pieta Hotspurs.

Gunnar skoraði með laglegum skalla eftir fyrirgjöf frá hægri og kom sínu liði í 0-3.

St. Andrews er í 12. sæti deildarinnar eftir tuttugu leiki, tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni. Alls verða leiknar 28 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner