Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson skoraði þriðja deildarmark sitt með Real Sociedad á tímabilinu er hann minnkaði muninn í 2-1 gegn Real Oviedo í dag.
Orri Steinn er að finna sitt gamla form eftir að hafa glímt við erfið meiðsli fyrri hluta tímabilsins.
Hann hefur verið að fá tækifærið inn af bekknum í síðustu leikjum og heldur hann áfram að nýta þau.
Orri kom inn á sem varamaður í stöðunni 2-0 fyrir Oviedo og tókst að minnka muninn aðeins tíu mínútum síðar með frábærum þrumuskalla eftir fyrirgjöf Sergio Gomez.
Flott mark hjá Orra sem er nú kominn með þrjú deildarmörk og fjögur í öllum keppnum, en markið má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu skallamark Orra hér
Orri Steinn Óskarsson pulls one back for his team
— Goals Xtra (@GoalsXtra) February 21, 2026
???????? Real Sociedad 1–2 Real Oviedopic.twitter.com/GDsZWMfp7z
Athugasemdir



