Real Sociedad 3 - 3 Oviedo
0-1 Federico Vinas ('50 )
0-2 Federico Vinas ('52 )
1-2 Orri Oskarsson ('64 )
2-2 Duje Caleta-Car ('87 )
3-2 Orri Oskarsson ('90 )
3-3 Eric Bailly ('90 )
0-1 Federico Vinas ('50 )
0-2 Federico Vinas ('52 )
1-2 Orri Oskarsson ('64 )
2-2 Duje Caleta-Car ('87 )
3-2 Orri Oskarsson ('90 )
3-3 Eric Bailly ('90 )
Orri Steinn Óskarsson átti stórkostlega frammistöðu inn af bekknum í annars grátlegu 3-3 jafntefli Real Sociedad gegn botnliði Real Oviedo í La Liga á Spáni í dag.
Landsliðsmaðurinn byrjaði á bekknum en var kynntur til leiks eftir hræðilega byrjun Sociedad í síðari hálfleiknum. Federico Vinas skoraði tvö á tveimur mínútum en innkoma Orra Steins skipti sköpum.
Hann minnkaði muninn með algerum þrumuskalla á 64. mínútu, tíu mínútum eftir að hafa komið inn á og þá jafnaði króatíski varnarmaðurinn Djue Caleta-Car metin þremur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma með skalla eftir hornspyrnu.
Aðeins fáeinum mínútum síðar gerði Orri Steinn annað mark sitt í leiknum eftir hraða skyndisókn. Goncalo Guedes keyrði upp hægra megin sá Orra aleinan í teignum sem var síðan yfirvegaður fyrir framan markvörð gestanna og setti boltann í hægra hornið. Fjórða mark hans í deildinni.
Ótrúleg innkoma en grátlegt fyrir Orra að það hafi ekki reynst sigurmarkið. Á annarri mínútu í uppbótartíma jafnaði Eric Bailly, fyrrum leikmaður Manchester United, fyrir Oviedo og þar við sat.
Engu að síður ánægjulegt að sjá að Orri sé búinn að finna sitt gamla form og hlýtur þetta að vera nóg til þess að koma honum í byrjunarliðið.
Sociedad er í 9. sæti með 32 stig, þremur stigum frá Evrópusæti eftir 25 umferðir á meðan Oviedo er í botnsætinu með aðeins 17 stig.
Athugasemdir



