21.03.06 - 17:47
Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Heiðar seldur til Hannover (Staðfest)

Gunnar Heiðar í leik með Halmstad.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson

Gunnar Heiðar í leik með Halmstad.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Halmstad í Svíþjóð hefur selt Gunnar Heiðar Þorvaldsson til Hannover í Þýskalandi en frá þessu var greint á heimasíðu sænska félagsins rétt í þessu. Þar er sagt að ákveðið hefði verið að selja hann í stað þess að láta hann fara frítt frá félaginu þegar samningur hans rennur út um næstu áramót.
Gunnar Heiðar gengur til liðs við Hannover þann 1. júlí næstkomandi en liðið leikur í efstu deild í Þýskalandi. Ekki er gefið upp hvert söluverð hans var en reikna má með að það sé á bilinu 50 - 100 milljónir.
Gunnar samdi við Hannover til þriggja ára.
Gunnar samdi við Hannover til þriggja ára.
Heimild: Eyjar.net
