Brighton 2 - 1 Liverpool
1-0 Danny Welbeck ('14 )
1-1 Milos Kerkez ('30 )
2-1 Danny Welbeck ('56 )
1-0 Danny Welbeck ('14 )
1-1 Milos Kerkez ('30 )
2-1 Danny Welbeck ('56 )
Danny Welbeck fór fyrir Brighton þegar liðið lagði Liverpool að velli í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Liverpool varð fyrir áfalli snemma leiks þegar franski sóknarmaðurinn Hugo Ekitike fór meiddur af velli með tárin í augunum. Vonandi er það ekki alvarlegt.
Welbeck kom Brighton svo yfir eftir tæpan stundarfjórðung þegar hann skoraði af miklu harðfylgi. Welbeck varð þarna þriðji leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora yfir 10 mörk á einu tímabili 35 ára gamall eða eldri. Aðeins Zlatan Ibrahimovic og Gary McAllister höfðu náð því afreki áður en Welbeck bættist í þann flokk í dag.
Welbeck er búinn að eiga virkilega flott tímabil og er að gera tilkall í landsliðshóp Englands fyrir HM í sumar.
En Liverpool jafnaði metin fyrir hálfleik þar sem bakvörðurinn Milos Kerkez skoraði eftir slæm mistök í vörn heimamanna.
Staðan var jöfn í hálfleik en snemma í seinni hálfleiknum bætti Welbeck við sínu öðru marki og kom Brighton aftur yfir. Það var spurning með rangstöðu í markinu en markið stóð.
Brighton voru mun sterkari í seinni hálfleiknum og voru líklegri til að bæta við en Liverpool að jafna.
Lokatölur 2-1 og sigur Brighton staðreynd. Þeir hoppa upp í áttunda sæti deildarinnar með 43 stig. Liverpool hefur sótt eitt stig í síðustu þremur deildarleikjum sínum og er í fimmta sæti með 49 stig. Chelsea getur komist upp fyrir Liverpool síðar í dag og þá eru lærisveinar Arne Slot ekki lengur í Meistaradeildarsæti. Liverpool, eins og þeir eru að spila í dag, eru í stórhættu að missa af Meistaradeildinni.
Athugasemdir

