Eyrún Vala Harðardóttir hefur rift samningi sínum við Fram og mun ekki leika með liðinu í sumar.
„Takk kærlega fyrir allt Fram," skrifar hún á samfélagsmiðla.
„Takk kærlega fyrir allt Fram," skrifar hún á samfélagsmiðla.
Eyrún gekk til liðs við Fram frá Stjörnunni árið 2024. Hún lék 13 leiki í Lengjudeildinni og skoraði eitt mark er Fram fór upp í Bestu deildina.
Hún er fjölhæfur leikmaður sem spilaði svo 14 leiki í Bestu deildinni í fyrra og skoraði tvö mörk.
Eyrún Vala er uppalin í Breiðabliki en hóf meistaraflokksferil sinn með Augnabliki árið 2019. Hún hefur einnig leikið með Aftureldingu og HK á ferlinum. Þá á hún 5 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.
Athugasemdir


