Hollendingur í byrjunarliði Vals í sigri gegn ÍR

Tryggvi Hrafn skoraði tvö mörk í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Myles Veldman

Mynd: Twitter

Tryggvi Hrafn skoraði tvö mörk í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 6 - 2 ÍR
Mörk Vals: Tryggvi Hrafn Haraldsson (2), Lúkas Logi Heimisson (2j, Dagur Orri Garðarsson og Hólmar Örn Eyjólfsson.
Mörk ÍR: Emil Nói Sigurhjartarson og Guðjón Máni Magnússon.

Valur tók á móti ÍR í æfingaleik í dag og urðu lokatölur 6-2 Hlíðarendapiltum í vil. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði tvennu í dag en hann gerði sigurmarkið í 1-0 sigri á Leikni fyrir viku síðan. Lúkas Logi Heimisson skoraði einnig tvennu í leiknum.
Dagur Orri Garðarsson er kominn á blað hjá Val og Hólmar Örn kom boltanum einnig í netið í leiknum. Frederik Schram var mættur í markið hjá Val eftir meiðsli. Það voru þeir Guðjón Máni og Emil Nói skoruðu mörk ÍR sem verður í Lengjudeildinni í sumar.
Það vakti athygli að hollenskur vinstri bakvörður spilaði með Val í dag. Sá heitir Myles Veldman og lagði upp eitt mark í dag. Myles er 22 ára, fæddur 2003 og er skráður leikmaður litháenska félagsins Nevezis á Transfermarkt.
Hann er uppalinn hjá ADO Den Bosch og hefur einnig verið á mála hjá unglingaliðum Willem II, Cambuur og Alphense en hefur ekki spilaði ekki meistaraflokksbolta fyrr en í Litháen þar sem hann hefur skorað tvö mörk í fjórtán leikjum í næstefstu deild. Hann er einnig með súrínamskan ríkisborgararétt.
Byrjunarlið Vals: Frederik; Jakob Franz, Hólmar Örn, Hörður Ingi, Veldman; Birkir, Ólafur Flóki, Adam, Skoglund; Tryggvi og Lúkas.
Íslandsmótið hjá Val, sem er í Bestu deildinni, hefst eftir þrjár vikur og Lengjudeildin hefst svo í lok apríl. Eftir átta daga mætir ÍR liði Aftureldingar í 2. umferð í forkeppninni í Mjólkurbikarnum og viku síðar eru 32-liða úrslitin spiluð og þar mæta Valsarar til leiks.