Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 16:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Slot: Það er alltaf pressa hjá Liverpool
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Mynd: EPA
„Það var mikið áfall að missa eina sóknarmanninn, sem gat spilað, út af eftir eina eða tvær mínútur," sagði Arne Slot, stjóri Liverpool, eftir 2-1 tap gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Hann var þá að tala um Hugo Ekitike sem fór meiddur af velli í upphafi leiks. Alexander Isak er á meiðslalistanum en stutt er í endurkomu hans.

„Fyrri hálfleikurinn var jafn en Brighton var betra liðið á vellinum í síðari hálfleik."

Slot segist ekki búast við því að Ekitike verði frá næstu þrjá mánuðina en það hafi samt sem áður verið mikið áfall að missa hann út og mjög svekkjandi fyrir leikmanninn sjálfan.

Liverpool er í hættu á að missa af Meistaradeildinni út af slöku gengi að undanförnu í deildinni.

„Það er alltaf pressa hjá Liverpool. Það er pressa á mér og pressa á leikmönnunum. Það er eðlilegt. Við erum komnir í átta-liða úrslit FA-bikarsins og Meistaradeildarinnar en við verðum að reyna að komast í Meistaradeildina í gegnum deildina. Útileikir gegn Brighton eru alltaf erfiðir. Ég er ósáttari með að hafa tapað stigum gegn Tottenham í síðustu umferð. En samt sem áður á félag eins og Liverpool að ná úrslitum gegn Brighton á útivelli," sagði Slot.
Athugasemdir
banner