Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   lau 21. mars 2026 22:23
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Valencia vann í Sevilla
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sevilla 0 - 2 Valencia
0-1 Hugo Duro ('38 )
0-2 Largie Ramazani ('45+5 )

Spænsku vonbrigðaliðin Sevilla og Valencia áttust við í lokaleik dagsins í efstu deild og höfðu lærlingar Carlos Corberán betur.

Valencia var sterkara liðið í fyrri hálfleik og skoruðu Hugo Duro og Largie Ramazani mörkin. Duro skoraði fyrst eftir hrikalegan vandræðagang í varnarlínu Sevilla.

Fyrst áttu heimamenn misheppnað innkast sem leiddi til snöggrar sóknar, en þeir unnu boltann til baka aðeins til að missa hann strax aftur með einstaklega klaufalegu spili rétt fyrir utan eigin vítateig. Boltinn barst til Duro sem gaf laglega hælsendingu á Largie Ramazani, en Odysseas Vlachodimos gerði mjög vel að verja góða skottilraun frá Ramazani. Boltinn fór þó ekki langt því Duro var mættur til að fylgja eftir með skalla og taka forystuna.

Dómarinn bætti sex mínútum við fyrri hálfleikinn og tvöfaldaði Ramazani forystuna undir lokin eftir misheppnaða pressu hjá Sevilla. Ramazani skoraði af stuttu færi eftir frábæran undirbúning frá Luis Rioja.

Sevilla var mikið með boltann í síðari hálfleik og átti tíu marktilraunir án þess að skapa þó mikla hættu gegn sterkri vörn Valencia.

Lokatölur 0-2 og er Valencia sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir þrjá sigra í síðustu fjórum deildarleikjum.

Sevilla er aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 31 26 1 4 84 30 +54 79
2 Real Madrid 31 22 4 5 65 29 +36 70
3 Villarreal 31 19 4 8 56 36 +20 61
4 Atletico Madrid 31 17 6 8 51 32 +19 57
5 Betis 31 11 13 7 45 38 +7 46
6 Celta 31 11 11 9 44 40 +4 44
7 Real Sociedad 31 11 9 11 49 48 +1 42
8 Getafe 31 12 5 14 27 32 -5 41
9 Osasuna 31 10 9 12 37 38 -1 39
10 Espanyol 31 10 8 13 37 48 -11 38
11 Athletic 31 11 5 15 33 45 -12 38
12 Girona 31 9 11 11 33 45 -12 38
13 Vallecano 31 8 11 12 29 38 -9 35
14 Valencia 31 9 8 14 34 46 -12 35
15 Mallorca 31 9 7 15 39 48 -9 34
16 Sevilla 31 9 7 15 39 51 -12 34
17 Alaves 31 8 9 14 35 46 -11 33
18 Elche 31 7 11 13 39 47 -8 32
19 Levante 31 7 8 16 35 50 -15 29
20 Oviedo 31 6 9 16 24 48 -24 27
Slapp
banner