21.04.06 - 17:55
Magnús Már Einarsson
Mouter aftur til Hauka (Staðfest)

Ryan Mouter.

Mynd: Fótbolti.net

Ryan Mouter.

Mynd: Fótbolti.net
Miðjumaðurinn Ryan Mouter sem lék með Haukum árið 2004 mun leika aftur með Hafnfirðingum í fyrstu deildinni í sumar. Mouter sem er tvítugur átti raunar að koma aftur til Hauka í fyrra en þá fékk hann brjósklos og gat ekki spilað.
Mouter kom til Haukar árið 2004 í samstarfi sem Hafnarfjarðarliðið var í við Milton Keynes Dons (Wimbledon) og lék hann átta leiki í fyrstu deildinni það sumar.
Auk Mouter fengu Haukar annan liðsstyrk í vikunni þegar að Jónmundur Grétarsson kom frá Stjörnunni en hann getur leikið á kantinum og í fremstu víglínu.
Auk Mouter fengu Haukar annan liðsstyrk í vikunni þegar að Jónmundur Grétarsson kom frá Stjörnunni en hann getur leikið á kantinum og í fremstu víglínu.
