Fotbolti.net
21.04.08 - 20:29
Hafliði Breiðfjörð

Hólmfríður Samúelsdóttir í GRV (Staðfest)

Lið GRV.

Lið GRV.

Canon

Mynd: Einkasafn

Kvennaboltinn
Knattspyrnukonan Hólmfríður Samúelsdóttir er gengin til liðs við GRV sem er sameinað lið Grindavíkur, Reynis og Víðis Garði sem leikur í 1. deild kvenna að nýju en hún hafði farið frá félaginu í uppeldisfélag sitt, Breiðablik í vetur.
Hólmfríður, sem verður 24 ára gömul á miðvikudag lék með Breiðablik upp yngri flokkana en hefur undanfarin ár leikið með KR, Þór og nú síðast GRV í 1.deildinni síðastliðið sumar. Hún á að baki 11 leiki fyrir meistaraflokk Breiðabliks og hefur skorað í þeim tvö mörk.

Hólmfríður er í mikilli fótbolta fjölskyldu en móðir hennar er Ásta B. Gunnlaugsdóttir sem gerði garðinn frægan með Breiðablik á sínum tíma og yngri systir hennar er landsliðskonan Greta Mjöll Samúelsdóttir.

Hún lék 9 leiki með GRV í 1. deildinni í fyrra og skoraði í þeim þrjú mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.