Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. apríl 2021 06:00
Victor Pálsson
Mane fann fyrir markaþurrðinni
Mynd: EPA
Sadio Mane viðurkennir að hann hafi upplifað erfiða tíma er hann skoraði ekki í níu deildarleikjum í röð fyrir Liverpool.

Mane skoraði loksins á mánudaginn þegar Liverpool mætti Leeds en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Fyrir það hafði Mane ekki skorað í níu deildarleikjum í röð sem er óvenjulegt fyrir þennan markaskorara.

„Þetta var virkilega erfitt fyrir mig en við verðum að átta okkur á því að þetta er hluti af fótboltanum," sagði Mane.

„Ég veit það og ég reyni að gera mitt besta til að hjálpa liðinu meira og meira. Fyrir nokkrum árum hefði þetta verið erfiðara en nú er ég reynslumeiri og þekki fótboltann betur."

„Ég efaðist aldrei um sjálfan mig. Ég reyni að vera jákvæðari en ég hef áður verið."
Athugasemdir
banner
banner
banner