Fotbolti.net
21.05.07 - 12:53
Magnús Már Einarsson

Charlton fær framerjana Iwelumo og Varney (Staðfest)

Christ Iwelumo á Laugardalsvelli.

Christ Iwelumo á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Charlton hefur fengið sína fyrstu menn síðan að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur fengið Luke Varney frá Crewe og Chris Iwelumo frá Colchester.
Varney sem er 24 ára kostar Charlton tvær milljónir punda en hinn 28 ára gamli Iwelumo kemur frítt.

Iwelumo lék meðal annars með Aachen frá Þýskalandi og var hann með liðinu gegn FH í Evrópukeppni Félagsliða árið 2004.

,,Luke er spennandi ungur leikmaður og fellur vel inn í hópinn hjá leikmönnum Charlton. Chris hefur gott orðspor sem markaskorarari og sú staðreynd að hann kemur frítt gerir þetta að frábærum viðskiptum," sagði Alan Pardew stjóri Charlton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.