21.05.07 - 14:45
Magnús Már Einarsson
Haukar fá Bandaríkjamann (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Haukar úr annarri deild karla hafa fengið bandarískan leikmann að nafni Yared Yedenekachewm og hefur hann þegar fengið leikheimild með liðinu.
Yared þessi sem er 22 ára er fæddur í Addis Ababa í Eþíópíu en hann ólst upp í Bandaríkjunum í Arington, Virginia og er hann bandarískur ríkisborgari.
Hann hefur spilað með skólaliðum í Bandaríkjunum og síðast var hann með Northern Virginia Royals.
Haukar hafa unnið ÍH og Völsung 3-0 í fyrstu tveimur leikjum sínum í annarri deildinni og trónir liðið á toppi deildarinnar.