Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. maí 2021 17:30
Elvar Geir Magnússon
Welbeck fær framlengingu hjá Brighton
Mynd: EPA
Danny Welbeck, fyrrum sóknarmaður Manchester United og Arsenal, hefur skorað sex mörk fyrir Brighton á þessu tímabili.

Graham Potter, stjóri Brighton, segir að þessi þrítugi sóknarmaður hafi gert nóg til að vinna sér inn nýjan samning.

„Danny hefur gert nóg til að fá nýjan samning. Við erum mjög ánægð með það sem hann hefur gert. Ég veit að hann getur haldið áfram að bæta sig og gert enn meira," segir Potter.

Brighton er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið heimsækir Arsenal í lokaumferðinni á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner