Fotbolti.net
21.05.24 - 09:50
Elvar Geir Magnússon

Ranieri heldur áfram að ná mögnuðum árangri - Ætlaði að segja af sér um mitt tímabil

Ranieri er goðsögn hjá Cagliari.

Ranieri er goðsögn hjá Cagliari.

Canon

Mynd: EPA

Claudio Ranieri er þekktastur fyrir það afrek að hafa gert Leicester að Englandsmeisturum en þessi 72 ára stjóri er enn í fullu fjöri og er að gera frábæra hluti með Cagliari.

Um helgina náði liðið að halda sæti sínu í ítölsku A-deildinni og Ranieri var borinn á kóngastól af leikmönnum sínum eftir leikinn.
Ranieri tók við Cagliari á Þorláksmessu 2022 en á þeim tíma var liðið í 14. sæti í B-deildinni. Hann kom liðinu á flug og það endaði með því að vinna sér inn sæti í A-deildinni.

Ætlaði að segja upp
Þetta tímabil byrjaði erfiðlega og um mitt tímabil bauðst Ranieri til að segja upp. Félagið og leikmenn fengu hann til að skipta um skoðun. Það borgaði sig því Cagliari verður áfram í deild þeirra bestu.

„Ég ætlaði að fara en strákarnir stöðvuðu það því þeir vildu halda mér. Ég samþykkti það gegn því loforði að þeir myndu vakna og komast á skrið," segir Ranieri.

„Ég á eitt ár eftir af samningi mínum en bíðum og sjáum. Ég ætla að fara í smá frí núna og fá hvíld."

Ranieri er goðsögn hjá Cagliari en hann tók fyrst við liðinu 1988 og skapaði sér nafn sem stjóri. Hann kom liðinu þá upp í A-deildina með því að fara upp um tvær deildir á tveimur árum. Hann hélt svo liðinu uppi í A-deildinni.
Ranieri heldur áfram að ná mögnuðum árangri - Ætlaði að segja af sér um mitt tímabil
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter9+1525
2Lazio9+1525
3Roma9+1521
4Como9+920
5Milan9+718
6Napoli9+614
7Frosinone8+414
8Juventus9+114
9Torino9013
10Cagliari9-513
11Bologna9011
12Atalanta8-110
13Genoa9-510
14Lecce8-59
15Sassuolo9-88
16Monza9-67
17Udinese9-95
18Parma9-105
19Fiorentina8-104
20Venezia9-133
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.