Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Samþykki sem kallar á reglubreytingu - Voru meðvitaðir um áhættuna
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Sölvi mættur aftur í ÍA.
Jón Sölvi mættur aftur í ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni verður frá næstu mánuðina.
Árni verður frá næstu mánuðina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þegar félagaskipti Jóns Sölva Símonarsonar frá Breiðabliki til ÍA fóru í gegn varð ljóst að ÍA hefði fengið undanþágu frá KSÍ um að fá inn markvörð til félagsins þó að félagaskiptaglugganum var lokað.

Rök ÍA voru þau að aðalmarkvörður liðsins, Árni Marinó Einarsson, verði frá næstu 2-3 mánuðina vegna ristarbrots og markvörðurinn sem hefur verið til vara fyrir Árna, Isak Theodor Eidem, sé einungis 17 ára og hafi ekki spilað meistaraflokksleik í Íslandsmóti. Aðrir markverðir félagsins, á meistaraflokksaldri eða 2. flokks aldri, eru skráðir í venslaliðið Kára.

Framkvæmdastjóri KSÍ, Eysteinn Pétur Lárusson, samþykkti ósk ÍA um að heimila félagaskipta á grundvelli gr. 10.2 í reglugerð KSÍ. Þegar málið var metið var litið til markvarðarstöðu félagsins, hversu löng fjarvera Árna verður og þá staðreynd að um tveir mánuðir séu í að félagaskiptaglugginn opni aftur.

ÍA gat reynt við hvaða markmann sem er, svo lengi sem að hann hefði ekki spilað með liði í Bestu deildinni á þessu tímabili. Jón Sölvi Símonarson er fæddur árið 2007, er unglingalandsmaður og hafði ekki spilað á Íslandsmótinu í meistaraflokki í ár. Hann var á láni hjá ÍA síðasta sumar og var í hlutverki varamarkmanns. ÍA vildi kaupa hann í vetur, það var ekki leyndarmál að félagið vildi fá hann aftur, en það gekk ekki upp fyrr en núna. Með því að fá Jón Sölva fær ÍA inn aðeins eldri markvörð, en þó markvörð sem býr yfir mjög takmarkaðri reynslu, einungis einn leik í Lengjubikarnum, í meistaraflokki. Reynsluleysi voru ein af rökunum sem ÍA setti fram.

Undirrituðum þykir sérstakt að ÍA hafi getað lánað varamarkvörðinn sinn, Loga Mar Hjaltested, til Kára fyrir gluggalok og verið með því meðvitað um að einungis einn markvörður á meistaraflokksaldri væri eftir í hópnum. Þegar Árni svo meiðist var hægt að sækja um undanþágu og reyna aftur við draumaskotmarkið, og núna gekk það upp, af því undanþágan var veitt, Breiðablik var tilbúið að selja og einu skilyrðin voru þau að markvörðurinn mátti ekki vera búinn að spila í Bestu deildinni á þessu tímabili.

Það var meðvituð ákvörðun ÍA að vera ekki með reyndari varamarkvörð. Svo það sé sagt þá skil ég ÍA mjög vel að reyna fá undanþágu, mjög eðlileg beiðni, en ég skil ekki að hún hafi verið samþykkt með þessum hætti.

Fyrir mér hefði verið langeðlilegast að ÍA hefði fengið undanþágu til að mega kalla Loga til baka frá Kára. Fyrir mér opnar þetta á þann möguleika að félög fari meðvitað inn í mót án eiginlegs varamarkmanns og sæki svo um undanþágu ef hann verður frá til lengri tíma og glugginn sé á þeim tíma lokaður. Félög geta sparað talsverðan pening með því. Í þessu tilviki voru um ein meiðsli að ræða, undanþágan væri mun skiljanlegri ef menn í fleirtölu væru meiddir.

Þetta hefur ekkert með Isak eða Jón Sölva að gera. Mér finnst þessi ákvörðun framkvæmdastjóra KSÍ ekki góð og það þarf að endurskoða þessa reglu.
Slapp
banner