Fotbolti.net
21.06.06 - 06:33
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Dabo til Manchester City (Staðfest)

<b>Dabo:</b> Frá ljósbláu yfir í ljósblátt

Dabo: Frá ljósbláu yfir í ljósblátt

Canon

Mynd: Getty Images

Franski miðjumaðurinn Ousmane Dabo hefur gengið til liðs við Manchester City frá ítölsku risunum í Lazio á frjálsri sölu og skrifaði hann undir þriggja ára samning við félagið.
Dabo hefur spilað með AC Milan, Parma og Monaco og stóðst læknisskoðun hjá City í gær. Hann spilaði 28 leiki fyrir Lazio á síðasta tímabili og neitaði sex ára samning á Stadio Olimpico sem er ótrúlega góður samningur fyrir 29 ára gamlan leikmann.

,,Ég er ánægður með að Ousmane kom til okkar. Hann er reynslumikill varnarsinnaður miðjumaður og ég tel hann mikinn feng fyrir félagið. Okkur gekk illa á útivelli á síðasta tímabili og ef þú skoðar það sérðu að þetta var staðan sem við náðum ekki að finna rétta manninn,” sagði Stuart Pearce.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.