21.06.07 - 15:46
Magnús Már Einarsson
Reynir fær Stefán Örn að láni frá Keflavík (Staðfest)

Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn

Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn
Reynir Sandgerði úr fyrstu deild karla hefur fengið sóknarmanninn Stefán Örn Arnarson að láni frá Keflavík í einn mánuð en Sandgerðingar eiga sex deildarleiki á þessu tímabili.
Stefán Örn sem er á 26 aldursári hefur leikið fimm leiki með Keflvíkingum í sumar en hann hefur komið inn á sem varamaður í þeim öllum.
Árið 2005 kom Stefán til Keflvíkinga frá Víkingi á láni og skoraði þrjú mörk í fjórum leikjum. Í fyrra skoraði hann sex mörk í 14 leikjum í Landsbankadeildinni.
Stefán er þegar orðinn löglegur með Reyni og getur hann því leikið með liðinu gegn KA á Akureyri annað kvöld.
Í öðrum fréttum af Reyni má nefna að miðjumaðurinn Árni Freyr Guðnason mun væntanlega fara í aðgerð á næstunni vegna brjósklos en hann ætti að geta komið til baka í lok sumars.

Heimild: Heimasíða Reynis