Fotbolti.net
21.06.16 - 16:49
Fótbolti.net

Gummi Ben: Skítaveður í París en við höfum haft það verra

Auglýsing
Pétur Marteins og Gummi Ben.

Pétur Marteins og Gummi Ben.

Canon

Mynd: Síminn

Icelandair
Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá myndband frá Sportsstöð Símans þar sem Pétur Marteinsson og Guðmundur Benediktsson ræða um komandi leik Íslands gegn Austurríki.
Þeir eru staddir í París og verða í beinni kringum leikinn á morgun.

„Okkur gæti dugað jafntefli. Við vinnum og við erum áfram. Spurningin er samt hvernig vinnum við Austurríki?\" segir Guðmundur og Pétur grípur orðið.

„Við vitum að við eigum miklu meira inni. Við eigum eftir að sjá Gylfa sýna snilld sína, eftir að sjá kantarana, bakverðina koma upp, fyrirgjafir og sjá liðið halfa boltanum,\" segir Pétur.

„Það hefur dregið af okkur eftir því sem hefur liðið á leikina því það hefur farið svo mikil orka í að elta boltann.\"

Sjáðu þetta skemmtilega spjall í sjónvarpinu hér að ofan en þar spá þeir meðal annars í líklegt byrjunarlið Íslands.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.