Manchester United mun þurfa að lækka verðmiðann á argentínska vængmanninum Alejandro Garnacho, það er að segja ef félagið ætlar að losa sig við hann í sumar.
Garnacho á ekki afturkvæmt í lið United og hefur Ruben Amorim, stjóri félagsins, gert honum grein fyrir því að hann þurfi að finna sér nýtt félag í sumar.
Aston Villa, Bayer Leverkusen, Chelsea og Napoli eru öll á eftir honum, en ekkert félag er þó reiðubúið að greiða 70 milljóna punda verðmiðann sem United hefur sett á hann.
GiveMeSport segir að Man Utd sé að íhuga það að lækka verðið á Garnacho niður í 40 milljónir punda til þess að koma honum frá klúbbnum sem allra fyrst.
Garnacho kom 16 ára gamall til United frá Atlético og spilaði stórt hlutverk undir stjórn Erik ten Hag. Argentínumaðurinn er hins vegar ekki í myndinni hjá Amorim sem vill heldur nota þá Amad Diallo og Mason Mount.
Athugasemdir