Fotbolti.net
21.06.26 - 02:57
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Túnis og Japans: Nýi þjálfarinn skiptir um markvörð

Herve Renar mun stýra Túnis í fyrsta sinn á eftir

Herve Renar mun stýra Túnis í fyrsta sinn á eftir

Canon

Mynd: EPA

Túnis og Japan mætast í F-riðli heimsmeistaramótsins á Estadio BBVA-leikvanginum í Monterrey í Mexíkó klukkan 04:00 í nótt, en þetta er síðasti leikur næturinnar.
Japan náði í sterkt stig í 2-2 jafntefli gegn Hollandi í fyrstu umferð riðlakeppninnar á meðan Túnis fékk 5-1 skell gegn Svíþjóð.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir báðar þjóðir. Túnis er úr leik með tapi, á meðan Japan getur með sigri komist upp fyrir Svía og í annað sæti riðilsins.

Þetta verður fyrsti leikur Túnis undir stjórn Hervé Renard, sem tók við af Sabri Lamouchi eftir tapið gegn Svíum.

Renard gerir þrjár breytingar frá þeim leik og skiptir meðal annars um markvörð. Aymen Dahmen kemur í markið í stað Abdelmouhib Chamakh. Sebastian Tounekti og Dylan Bronn koma einnig inn í liðið í stað Rani Khedira og Mohamed Ben Hamida.

Hajime Moriyasu, þjálfari Japans, gerir fjórar breytingar þrátt fyrir sterkt stig gegn Hollendingum. Takehiro Tomiyasu og Ko Itakura koma inn í vörnina í stað Shogo Taniguchi og Tsuyoshi Watanabe.

Junya Ito og Ao Tanaka koma einnig inn í liðið í stað Takefusa Kubo, sem er frá vegna meiðsla, og Daizen Maeda.

Túnis: Dahmen (M); Abdi, Talbi, Rekik, Bronn, Valery; Mejbri, Skhiri (F), Slimane, Tounekti; Saad.

Japan: Suzuki (M); Itakura (f), Hiroki Ito, Tomiyasu; Tanaka, Nakamura, Junya Ito, Kamada, Sano, Doan; Ueda.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.