21.07.07 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Rommedahl til Ajax (Staðfest)

Rommedahl hér gegn Indriða Sigurðssyni í landsleik þar sem Rommedahl fór oft illa með varnarmenn Íslands

Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson

Hollenska stórveldið Ajax hefur gengið frá kaupum á danska kantmanninum Dennis Rommedahl og er kaupverðið 675 þúsund pund.
Rommedahl var mikið orðaður við lærisveina Michael Laudrup hjá Getafe en stóðst læknisskoðun hjá Ajax í dag. Hann kemur frá Charlton sem féllu úr úrvalsdeildinni en hann kom þangað frá helstu keppinautum Ajax, PSV Eindhoven.
Rommedahl stóð aldrei undir væntingum á Englandi en segist vera orðinn fjölhæfari eftir dvöl sína þar en hlakkar jafnframt til að spila aftur í Hollandi.
,,Ajax hentar mér frábærlega, vonandi henta ég þeim vel. Vilji minn var að fara aftur til Hollands. Ég dvaldi hér um tíma og mér líkar knattspyrnan sem er spiluð hérna. Ajax spila líka alltaf sóknarbolta."
,,Á tíma mínum á Englandi varð ég mun fjölhæfari leikmaður og spilaði til að mynda sem hægri bakvörður með Danmörku. Ég held þó að Ajax hafi ekki keypt mig í þá stöðu," sagði Rommedahl að lokum en hann spilaði 84 leiki fyrir Charlton og skoraði í þeim 6 mörk.

Heimild: Sky