Fotbolti.net
21.07.07 - 18:35
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Diego Tristan til Livorno (Staðfest)

Diego Tristan til Livorno (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Livorno greindi frá því í dag að þeir höfðu fengið til sín fyrrum sóknarmann Deportivo La Coruna, Diego Tristan.
Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur skrifað undir eins árs samning á Stadio Picchi sem er talinn vera virði 470 þúsund pund með möguleika á öðru ári.

Tristan, sem spilaði frábærlega með Deportivo í La Liga og Meistaradeildinni á sama tíma, var látinn fara frá Real Mallorca í janúar eftir að honum mistókst að skora í þrettán leikjum.

Hann mun líklega vera við hlið Francesco Tavano í framlínunni eftir að Cristiano Lucarelli var seldur til Shakhtar Donetsk á sex milljónir punda.

Heimild: Channel 4

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.